Setja fjárfestum úrslitakosti



  • Prenta
  • Senda frétt

Félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar hefur gefið fjárfestum frest út vikuna til þess að klára samninga um byggingu hótels við Hörpu. Árangurslausar viðræður hafa staðið mánuðum saman.

Ekkert bólar á framkvæmdum þýska félagsins World Leisure Investment sem ætlaði að byggja 262 herbergja hótel við Hörpu og eigendurnir eru að missa þolinmæðina.

Félagið Sítus, sem er í eigu Reykjavíkurborgar og ríkisins, á lóðina. Samningar við World Leisure Investment um byggingu Marriot Hótels við Hörpu voru tilbúnir í maí á síðasta ári. Samningarnir hafa hins vegar ekki enn verið undirritaðir þar sem samstarfsaðili fjárfestanna, Interhospitality Holdings, sem er hluti af IKEA samstæðunni, hefur haft efasemdir um að fjárfesta á Íslandi.

Pétur J. Eiríksson stjórnarformaður Sítusar, segir fjárfestanna einkum hafa áhyggjur af gjaldeyrishöftum og íslensku krónunni. Forsvarsmenn Sítusar hafi árangurslaust reynt að efla tiltrú fjárfestanna á Íslandi, unnið hafi verið í þessu síðan í maí af beggja hálfu en allt hefur komið fyrir ekki.

Sítus hefur nú sett þeim úrslitakosti. Þeir hafa þessa viku til að klára samninga og undirrita þá og ef það verður ekki gert fyrir lok vikunnar verður leitað til næstbjóðenda og farið í könnunarviðræður við aðra bjóðendur

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku