Sesum meiddist á auga eftir leikinn

Zarko Sesum
Erlendir fjölmiðlar greina frá serbneski landsliðsmaðurinn í handknattleik, Zarko Sesum, hafi fegnið einhvern hlut, plastflösku eða smáminnt, í augað þegar hann gekk af leikvelli eftir sigur Serba á Króötum í undanúrslitaleik Evrópumótsins í Serbíu.
Fjölmiðlar segja að hluturinn, sem kastað var úr áhorfendastúkunni, hafi verið ætlaður leikmanni úr króatíska liðinu en ekki farið betur en svo að hann hæfði Sesum þess í stað. Sesum er nú á sjúkrahúsi þar sem hann gengst undir rannsóknir á auga og er undir eftirliti lækna. Vonast er til þess í herbúðum Serba að Sesum geti æft með liðinu í dag og tekið þátt í úrslitaleiknum gegn Dönum á morgun.
Mikil öryggisgæsla var á leik Serba og Króata í gær í kjölfar óeirða sem höfðu verið í borginni Novi Sad þar sem milliriðlarnir fóru fram en þar höfðu serbneskir þjóðernissinar borið eld að nokkrum bifreiðum með króatískum númerum og veist að stuðningsmönnum Króata. Svo mikil var öryggisgæslan fyrir leik að áhorfendum var gert að ganga í gegnum vopnaeftirlit við innganginn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







