Serbar mæta Dönum í úrslitum

Serbar unnu Króata í undanúrslitum í kvöld og mæta Dönum í úrslitaleik um Evrópumeistaratiltilinn á sunnudag

Serbar unnu Króata með fjögurra marka mun 26-22 í síðari undanúrslitaleik Evrópumótsins í handknattleik í Serbíu í kvöld.

Serbar og Danir mætast í úrslitaleik á sunnudaginn en Króatar leika gegn Spánverjum um bronsið. Leikur Króata og Spánverja hefst kl.13.15 en sjálfur úrslitaleikurinn milli Serba og Dana kl.16.00 og eru báðir leikir sýndir á RÚV.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku