Áætlað er að hefja í vor, siglingar með farþega í selaskoðun á Miðfirði. Milli þrjátíu og fjörutíu þúsund manns komu í Húnaþing á síðasta ári til að skoða sel af landi og nú verður hægt að skoða selinn af sjó. Selasigling ehf. hefur keypt tuttugu tonna eikarbát, sem verður breytt til þessara siglinga, meðal annars verður opnað niður í lest og gerð þar aðstaða fyrir farþega. Fyrsta siglingin er áætluð 17. maí.
frettir@ruv.is