Segja upp samningum um Helguvík

Frá fundi um kísilverksmiðjuna. Safnmynd.


  • Prenta
  • Senda frétt

Íslenska kísilfélagið hf. hefur rift samningi við bandaríska fyrirtækið Globe Speciality Metals fyrir vanefndir vegna fyrirhugaðrar kísilverksmiðju í Helguvík.

Fjárfestingasamningar milli stjórnvalda, Reykjanesbæjar og Íslenska kísilfélagsins vegna 40 þúsund tonna kísilverksmiðju í Helguvík, voru undirritaðir febrúar á síðasta ári og áttu framkvæmdir að hefjast síðasta sumar. Globe Speciality Metals hefur síðan dregið lappirnar, en félagið keypti fyrir skemmstu þrotabú kísilverksmiðju í Kanada og virðist hafa ákveðið að beina sjónum sínum frekar þangað.

Magnús Garðarsson forstjóri Íslenska Kísilfélagsins segir félagið hafa neyðst til að rifta samningnum við Globe svo framhald geti orðið á verkefninu. Raforkusamningur við Landsvirkjun féll úr gildi vegna vanefnda við að aflétta fyrirvörum í samningnum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku