Segja sig úr Y-listanum
Fyrst birt: 11.02.2012 16:09, Síðast uppfært: 11.02.2012 16:09

Kópavogur.
Ásdís Ólafsdóttir sem skipaði heiðurssæti Y-listans, Lista kópavogsbúa í síðustu bæjarstjórnarkosningum segir að fimm af tólf sem voru á framboðslista listans, hafi ákveðið að segja sig úr flokknum. Frambjóðendurnir fimm séu allt konur.
Ásdís var frá upphafi andvíg aðild listans að nýja meirihlutanum í bænum og bað bæjarbúa afsökunar daginn sem meirhlutinn var myndaður, á því þeirri u-beygju sem listinn hefði tekið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








