Segir stjórnvöld sýna fálæti

Frá Blönduósi. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir
Bjarni Jónsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sakar ríkisstjórnina um að sýna íbúum landshlutans fálæti. Ríkisstjórnin hafi ekki svarað erindi samtakanna með fullnægjandi hætti um mögulegar aðgerðir til að bregðast við fólksfækkun.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sendu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf 21. nóvember, þar sem farið var yfir erfiða stöðu svæðisins með tilliti til atvinnulífs og íbúaþróunar. Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, fékk afrit af bréfinu. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 200 á síðasta ári. Það nemur 75 prósentum af fækkun fólks á landsbyggðinni.
Í bréfinu var óskað eftir þátttöku og stuðningi við að mynda aðgerðahóp stjórnvalda og heimamanna til að bregðast við byggðavandanum. Bjarni segir að ekkert svar hafi borist frá ráðuneytinu, hvorki skriflega né munnlega, þar til í síðustu viku, eftir að erindi samtakanna hafði verið ítrekað bréflega í lok janúar. Þá var þeim boðinn fundur með starfsmönnum ráðuneytisins. Bjarni segir það óviðunandi. Krafan sé að fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar. Hann segir að fólk ætlast sé til þess að við það sé talað en ekki sýnt fálæti. Því hafi verið ítrekuð krafan um fund með stjórnvöldum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








