Segir nýtt kúakyn nauðsyn

Kýr af Holstein-frísnesku kyni. Mynd: Shutterstock.com
Stærsti kúabóndinn á Suðurlandi vill fá nýtt kúakyn til landsins og segir að það sé forsendan fyrir því að kúabændur geti þróast áfram í mjólkurframleiðslu. Hann vill svart-skjöldóttar Holstein Frísneskar kýr, sem er alþjóðlegt kúakyn eða rauðar kýr frá Noregi til landsins.
Íslensku kýrnar er hægt að geyma í frystikútum segir Arnar Bjarni Eiríksson. Arnar Bjarni og Berglind Bjarnadóttir eru stærstu kúabændurnir á Suðurlandi en þau eru með bú sín í Gunnbjarnarholti og Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Mjólkurkvóti þeirra er tæplega 1 milljón lítra. Arnar Bjarni er virkur í félagsstörfum kúabænda og liggur þar ekki á skoðunum sínum. Nú vill hann fá nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst.
„Já, það er bara forsendan fyrir því að við getum þróast hérna áfram í mjólkurframleiðslu. að við fáum nýtt kúakyn. Afurðastigið er svo miklu, miklu hærra“ segir Arnar Bjarni. Nýtt kyn myndi snarauka alla hagvæmni í tækjakosti þar sem afköstin eru svo margfalt meiri sagði Arnar Bjarni í samtali við fréttastofuna.
„Ég held að það væri nú eðilegast að byrja að fara í þessi tvínytjakyn svokölluðu, sem eru þá rauðu skandanavísku kynin, þar eru bæði góðar kjötafurðir og mjólkurafurðir. Seinna meir sæi ég fyrir mér að farið yrði út í Holstein Friesian kýr, sem eru þá í rauninni mun meiri mjólkurkýr og vandmeðfarnari í fóðrun."
En er ekki eftirsjá að íslenska kúa kyninu?
„Nei, það er sjálfsagt að halda í kynið áfram. Hvort sem að það verður geymt í frystikútum eða að einhverjir taka þann kost fram yfir að búa með íslenskar kýr eins og reyndar margir íslenskir bændur tala um í dag, þá held ég að það yrði aldrei vandamál."
Arnar Bjarni segir að það tæki um þrjú ár að fá nýtt kúakyn til landsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








