Segir göngin ekki sjálfbær

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir
Þingmaður Hreyfingarinnar segir fyrirhugaða ríkisábyrgð á Vaðlaheiðargöngum viðurkenningu á því að göngin séu ekki sjálfbær.
Fjármálaráðuneytið vinnur nú að frumvarpi sem gerir ráð fyrir að ríkisábyrgð verði á Vaðlaheiðargöngum. Upphaflega var hins vegar gert ráð fyrir því að þau myndu borga sig upp sjálf með veggjöldum.
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur efasemdir vegna þess fordæmis sem þetta kynni að skapað. Þarna geti orðið tvöfalt kerfi í samgöngumálum. Annars vegar þær sem metnar verði með hefðbundnum hætti og hins vegar framkvæmdir þar sem héruð geti sagst vera til í að borga 30, 40 eða 50 prósent. Kannski gangi það, en hann hafi efasemdir um það.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, líkir þessu við þegar Íslensk erfðagreining fékk ríkisábyrgð vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði. Þá hafi lög um ríkisábyrgð ekki verið látin gilda. Þór segist eiga erfitt með að sjá að núverandi fjármálaráðherra fylgi þessari tillögu eftir. Þetta sé í besta falli algjörlega óhæf tillaga. Það gildi lög um ríkisábyrgðir og samgöngumál og í gildi sé samgönguáætlun. Vaðlaheiðargöng séu tekin út fyrir sviga á öllum þessum stigum með það í huga að hún sé sjálfbær sem einkaframkvæmd. Þarna sé einfaldlega búið að viðurkenna að svo sé ekki.
Þór segir að aðrar framkvæmdir séu brýnni en þessi. Þótt þessi framkvæmd yrði að sjálfsögðu yrði til bóta sé brýnna að gera annað. Norðfjarðargöng séu brýnni og Dýrafjarðargöng einnig brýnni en Vaðlaheiðargöng.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Ríkisábyrgð á Vaðlaheiðagöngum






