Prenta frétt

Senda frétt

Segir af sér sem varaþingmaður

Björn Ingimarsson
Björn Ingimarsson
Björn Ingimarsson, nýr bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, ætlar að segja af sér varaþingmennsku. Hann er annar varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi en hefur verið ráðinn bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs þar sem sjálfstæðismenn eru í minnihluta.

Björn sagði í samtali við fréttastofu að það væri heiðarlegast að segja af sér enda ætli hann ekki að setjast á þing heldur einbeita sér að bæjarstjórastarfinu. Arnbjörg Sveinsdóttir á Seyðisfirði er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu en þriðji varaþingmaður er Anna Guðný Guðmundsdóttir á Akureyri. Hún kemur nú í stað Björns og verður önnur í röðinni.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

6. september 2010

Streymiþjónusta