Samstarf ekki sameiningu

Áhugi fyrir sameiningu sveitarfélaga fer þverrandi á meðal sveitarstjórnarmanna. Þeir telja að samstarf um verkefni skili betri árangri. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar um stöðu sveitarstjórnarstigsins sem kynnt verður á málþingi á Akureyri í dag.
Í dag er í Háskólanum á Akureyri haldið málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Þar verða meðal annars kynntar niðurstöður könnunar um viðhorf sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til málaflokksins. Þar kemur meðal annars fram að sveitarstjórnarmenn telja að sameining sveitarfélaga sé ekki rétta leiðin til að efla sveitarstjórnarstigið til frambúðar. Árangursríkara sé að starfa saman um einstök verkefni. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor, er einn skýrsluhöfunda.
„Það hefur ítrekað verið reynt að fara þessa sameiningarleið, án þess að stjórnvöld í landinu og löggjafinn hafi viljað taka það skerf til fulls að setja hækkaða lágmarksstærð í lög. Það er eins og menn séu búnir að gefast svolítið upp á þessu og vilji núna fara samstarfsleiðina.“
Grétar segir að könnunin sýni að sveitarstjórnar- og alþingismenn hafi verulegan áhuga á enn frekari yfirfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Stór slík verkefni hafi verið flutt á undanförnum misserum. Síðast málefni fatlaðra, verkefni, sem einmitt sé að stærstum hluta leyst með samstarfi. Þá vill meirihluti sveitarstjórnarmanna taka við málefnum aldraðra, heimahjúkrun og heilsugæslu. Áhugi er fyrir að flytja framhaldsskólana yfir til sveitarfélaganna í framtíðinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








