Prenta frétt

Senda frétt

Samningafundi lokið án niðurstöðu

Samningafundur flugumferðastjóra við Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll lauk fyrir klukkan þrjú í dag án árangurs. Óvíst er um framhald viðræðnanna og ekki hefur verið boðað til nýs fundar.

Bandalag háskólamanna lýsir andstöðu við inngrip af hálfu hins opinbera í kjaradeilur með lagasetningu, eins og til stóð að gera í deilu flugumferðastjóra við viðsemjendur sína í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM. Þar segir að aðild félagsins að stöðugleikasáttmála byggi á þeim forsendum að ekki verði gripið til lagasetninga eða stjórnvaldsaðgerða sem hafa bein áhrif á innihald kjarasamninga. BHM þyki staða kjaramála undanfarin ár umhugsunarverð, þar sem sýnt þyki að verkfallsvopnið sé oft eina haldreipi stéttarfélaga til að ná fram kröfum sínum.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta