Safnaráð skoðaði gullið

Sérfræðingar frá safnaráði og fulltrúi tollstjóra skoðuðu í morgun gull og silfurgripi sem breski gullkaupmaðurinn Mark Nangle keypti hér á landi um helgina.

Engin menningarverðmæti voru í fórum hans en bannað er að fara með gripi sem eru eldri en hundrað ára úr landi. Gullkaupmenn mátu eigur fólks á þremur hæðum á Grand Hóteli um helgina. Biðraðir mynduðust fyrir utan herbergin. Mikil eftirspurn er eftir gömlum gullskartgripum vegna þess að heimsmarkaðsverð á gulli er í sögulegu hámarki. Mark Nangle og aðrir gullkaupmenn ferðast nú um Evrópu til að falast eftir gömlum gullskartgripum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Viðskipti

Tilkynna um bilaða upptöku