Sækja ferðamenn á Vatnajökul

Björgunarsveit frá Hornafirði er að sækja tvo breska ferðamenn á Vatnajökul. Mennirnir eru blautir og hraktir og tjald þeirra brotið, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg, en þeir eru ekki taldir í hættu.

Mennirnir náðu sambandi við Bresku strandgæsluna um gervihnattasíma í morgun, og þaðan barst Neyðarlínunni hjálparbeiðnin. Þeir gáfu upp nákvæma staðsetningu, og eru björgunarsveitarmenn á leið til mannanna á þremur bílum og fjórum sleðum, um fimmtíu kílómetra leið á jökli. Vonast er til að hægt verði að koma þeim til byggða fyrir kvöldið, en spáð er versnandi veðri þegar líður á daginn.

Mennirnir hugðust ganga frá Kirkjubæjarklaustri, yfir Vatnajökul og til Hafnar, og virðast hafa verið á göngu í mánuð, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Austurland

Tilkynna um bilaða upptöku