SA Víkingar unnu Björninn

Björninn tapaði fyrir SA Víkingum í Egilshöll í gærkvöld
SA Víkingar að norðan og Björninn úr Reykjavík mættust í spennandi leik á Íslandsmóti karla í íshokkí í Egilshöll í gærkvöld. Svo fór að Akureyringar unnu eftir framlengdan leik 5-4.
Víkingar komust í 4-0 en Birninum tókst að jafna í 4-4 svo að grípa varð til framlengingar til þess að knýja fram úrslit. Björn Már Jakobsson skoraði svo gullmark fyrir norðanmenn í framlengingunni og tryggði þeim 5-4 sigur í leiknum.
Mörk Bjarnarins skoruðu Matthías Skjöldur Sigursson, Ólafur Hrafn Björnsson, Andri Már Helgason og Arnar Bragi Ingason.
Lars Foder skoraði tvö mörk fyrir Víkinga að norðan, og þeir Björn Már Jakobsson, Steinar Grettisson og Andri Freyr Sverrisson allir eitt mark.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku






