Rýming í Hnífsdal

Bærinn Hraun í Hnífsdal var rýmdur um klukkan átta í kvöld vegna hættu á snjóflóði úr fjallinu fyrir ofan. Ábúendur fóru til ættingja. Félagsheimilið í bænum er einnig á rýmingarsvæði, en engin önnur íbúðarhús.

Rýming er enn í gildi á iðnaðarsvæði á Ísafirði, og vegurinn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals er lokaður. Leiðin milli Ísafjarðar og Súðavíkur er einnig lokuð vegna snjóflóðahættu. Búist er við stormi á norðvestanverðu landinu í nótt, á svæðinu frá Snæfellsnesi að Ströndum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku