Rýming á Ísafirði og Hnífsdal
Fyrst birt: 27.01.2012 20:41, Síðast uppfært: 28.01.2012 05:20

Hætta er á snjóflóðum á Ísafirði og í Hnífsdal. Í kvöld féll snjóflóð úr Kirkjubólshlíð og var ákveðið að rýma Hraun í Hnífsdal og Höfða við Kirkjubólshlíð. Fólk sem þar býr fór til ættingja.
Eins var svæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði, það er reitur níu, rýmt en það er iðnaðarsvæði og á því engin íbúðarhús.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






