Rúnar maður leiksins gegn Frökkum

Rúnar Kárason

Rúnar Kárason var valinn besti maður Íslands eftir leikinn gegn Frökkum í gær en liðin gerðu jafntefli 29-29 í lokaumferð milliriðils tvö á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Rúnar stóð sig vel í leiknum og skoraði fjögur mörk fyrir Ísland en þetta var aðeins þriðji leikur hans með íslenska liðinu á stórmóti. Rúnar átti heldur betur góða innkomu í íslenska liðið á mótinu en hann var einnig valinn maður leiksins gegn Spánverjum í milliriðlinum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku