Rúm 20% í nýtingarflokk
Stærstur hluti orkukosta á Íslandi lendir í verndunarflokk, samkvæmt nýrri tillögu að rammaáætlun. Ríflega 20% enda í nýtingaflokki. Forsvarsmenn Samorku segja flokkun virkjunarkosta í nokkrum tilfellum hafa komið á óvart.
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, hefur tekið saman orkuvinnslugetu orkukosta sem flokkaðir eru í bið-, nýtingar-, og verndunarflokk í nýjum drögum að rammaáætlun.
Orkuvinnslugeta kosta sem lenda í verndunarflokki er mest. Má þar meðal annars nefna Gjástykki, Grændal og Norðlingaölduveitu. Orkuvinnslugeta þessara kosta er talin vera 13.900 gígawattstundir.
Möguleg orkuvinnsla kosta í nýtingarflokki er um 2000 gígawattstundum minni, en biðflokkurinn er þó minnstur. Orkuvinnslugeta hans er talin vera um 11 þúsund gígawattstundir.
Loks myndu um rúmar fimmtán þúsund gígawattsstundir lenda utan flokkunar þar sem umræddir orkukostir eru á svæðum sem hafa verið friðlýstir.
Því má segja að um 23% orkuvinnslugetunnar sem til umfjöllunar voru í vinnu verkefnisstjórnar fari í nýtingarflokk, verði þetta niðurstaðan við afgreiðslu Alþingis.
Tólf vikna opið umsagnarferli um flokkun virkjanakosta stendur nú yfir. Skiptar skoðanir hafa verið á flokkuninni sem var kynnt fyrir helgi. Náttúruverndarsamtök hafa gagnrýnt meðal annars nýtingaráform í neðri hluta Þjórsá. Þá telja þingmenn að hart verði tekist á um rammaáætlunina þegar hún kemur fyrir þingið.
Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, segir að það hafi komið á óvart að vikið hafi verið frá röðuninni hjá verkefnastjórninni. „Það eru þarna töluvert margir virkjunarkostir sem lenda ofarlega í röðun verkefnisstjórnar eins og hún skilaði í sumar en eru þarna færðir býsna langt niður, ýmist í biðflokk eða alla leið niður í verndarflokk.“
Vísar Gúsaf þarna til dæmis til Bitru og Norðlingaölduveitu sem voru um eða yfir miðju í röðun verkefnastjórnar um rammaáætlun. „Eftir alla þessa vinnu í verkefnastjórninni teljum við að það hefði hugsanlega verið meiri grunnur að sátt með því að fylgja flokkuninni frá verkefnastjórnuninni,“ segir Gústaf Adolf Skúlason.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Tilkynna um bilaða upptöku






