Rörasprengja fannst í Hafnarfirði

Rörasprengja fannst í húsi í Hafnarfirði á fimmtudag. Sprengjusveit ríkislögreglustjóra var kölluð á staðinn. Hún rannsakar sprengjuna sem reyndist vera ósprungið koparrör.

Sprengjan fannst á efri hæð húss, á gangi þar sem herbergi eru í útleigu. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur enginn undir grun. Bifvélaverkstæði er á neðri hæðinni. Starfsmenn verkstæðisins létu lögreglu vita af sprengjunni. Að sögn lögreglu er málið litið alvarlegum augum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku