Reyna að koma á reglu í Sómalíu

Mynd: Nordic Photos/AFP.
50 þjóðarleiðtogar og fulltrúar alþjóðlegra stofnana eru komnir til Lundúna til þess að samræma alþjóðlegar aðgerðir í Sómalíu. Aðgerðirnar eiga að miða að því að stöðva sjórán, fátækt, hungursneyð, styrjöld og þjálfun hryðjuverkamanna í Sómalíu.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu-Þjóðanna, og fulltúar ríkisstjórnar Sómalíu, Evrópusabandsins, Sambands Afríkuríkja og Arababandalagsins eru meðal þeirra sem komnir eru til Lundúna. William Hague, utanríkisráðherra Breta, segir að tilgangurinn sé að skapa sterkara og öruggara samfélag í Sómalíu eftir tveggja áratuga stríð, sjórán, hryðjuverk og hungursneyð. Nú sé rétti tíminn, þegar hafi náðst nokkur árangur og vonir standa til að meira verði áunnið til að koma á stöðugleika í Sómalíu.
Um ein milljón manna hefur týnt lífi í borgarstíðinu í Sómalíu sem staðið hefur í tvo áratugi. Herliði Sambands Afríkuríkja tókst nýverið að hrekja íslamska uppreisnarmenn í samtökunum Al-Shabab frá höfuðborginni Mogadishu. Þá samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í vikunni að fjölga friðargæsluliðum í landinu. Al-Shabab íslamistar tilkynntu nýverið að þeir ætluðu að sameinast Al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum. Þau hafa um 200 erlenda vígamenn í þjálfunarbúðum þar af er fjórðungur frá Bretlandi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






