Reyna að bæta skólpmálin

Frárennslislögn á Akureyri. RÚV-mynd: Snæfríður Ingadóttir.
Skólpmál á Akureyri hafa lengi verið í ólestri og saurkólígerlamengun hefur ítrekað mælst í smábátahöfninni. Nú er verið að endurbæta aðalfrárennslislögn bæjarins en vonast er til þess að minni skólpmengun mælist á landi með tilkomu nýju lagnarinnar.
Samkvæmt drögum að stöðuskýrslu fyrir vatnssvæði Íslands sem nú er til kynningar eru frárennslismál sveitarfélaga víða í ólestri, þar á meðal á Akureyri. Þar hefur skólpmengun ítrekað mælst í smábátahöfninni, en aðalfrárennslislögn bæjarins opnast rétt við höfnina og nær aðeins 5 metra frá landi og liggur á tveggja metra dýpi. Nú unnið að því að bæta stöðuna og verður núverandi frárennslislögn lengd um 100 metra og verður hún staðsett á 10 metra dýpi.
Vonast er til þess að minni skólpmengun mælist á landi með tilkomu nýju lagnarinnar, en þó er ekki um endanlega lausn að ræða því skólphreinsistöð á einnig að rísa á svæðinu. „Þetta er svokölluð neyðarútrás, og svo í framhaldinu þá kemur hreinsimannvirkið og endanlega útrásin sem fer 450 m langt út og fer á 40 m dýpi,“ segir Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur. „Það er núna á áætlun að byrja á henni 2017 og væntanlega [verður því] lokið 2019.“
Skólphreinsistöðin mun kosta um einn og hálfan milljarð en samtímis er reiknað með því að bragarbót verði einnig gerð í skólpmálum í Hrísey og Grímsey. „Það er takmarkað fé sem við höfum, þetta er dýr framkvæmd,“ segir Helgi Már. Nú á að ráðast í að klára málin. „Já, nú verður allt annað ástand í framtíðinni, þannig að það er hið besta mál.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













