Reiðhöll við Húsavík

Þingeyskir hestamenn hafa loksins eignast reiðhöll. Höllin, sem er við Húsavík, gjörbreytir allri aðstöðu til hestaiðkunar á svæðinu en fleiri íþróttagreinar munu þó einnig njóta góðs af henni.

Hestamannafélögin Grani og Þjálfi fengu á sínum tíma hvort um sig styrk frá landbúnaðarráðuneytinu til reiðhallarbyggingar. Félögin ákváðu að sameina þessa styrki og frá 2010 hefur myndarleg reiðhöll verið að reisa í landi Saltvíkur rétt sunnan við Húsavík. Að sögn Þorgríms Sigmundssonar, formanns hestamannafélagsins Grana, eru hestamenn afar kátir með nýju aðstöðuna en  framkvæmdir eru á lokastigi. 

"Þetta er bara eins og fólk getur ímyndaða sér algjör bylting, ég líki þessu bara við þegar íþróttahúsið var byggt hérna. Og allir þeir sem eru að stunda þessa íþrótt eru að fá allt annan grunn til að stunda þessa íþrótt," segir Þorgrímur. 

Reiðhöllin, sem er um 1100 fm að stærð,  mun ekki bara þjóna hestamönnum á svæðinu.  Að sögn Þorgríms býður húsið upp á ýmsa möguleika.  Hestamannafélagið, hefur nú þegar fengið fyrirspurnir frá akstursíþróttafólki, fótboltamönnum, golfurum og öðrum sem vantar innanhússaðstöðu. 

"Sveitarfélagið er búið að skipuleggja nýtt hesthúsahverfi í tengslum við þetta hús og völl við hliðina á því. Þannig að þetta hús er upphafið að algjörlega nýjum tíma fyrir hestamennskuna á þessu svæði," segir Þorgrímur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku