Réðst á leigubílstjóra í Garðabæ

Leigubílstjóri í Garðabæ óskaði eftir aðstoð lögreglu í nótt. Farþegi hafði ráðist á hann en sá hafði reynt að komast hjá því að greiða fargjaldið. Leigubílstjórinn mun kæra manninn fyrir líkamsárás og fjársvik en maðurinn braut einnig rúðu í anddyri heima hjá sér.

Verkefni lögreglunnar í nótt voru annars af ýmsum toga. Tilkynnt var um innbrot og þjófnað úr geymslu í Dalseli og þjófur var gómaður í Hagkaup í Skeifunni. Þá lokaði lögregla reykherbergi á skemmtistað í Austurborginni, enda reykingabann verið við lýði á veitingastöðum í tæp fimm ár. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku