Rannsaka félag sem flýgur fyrir IE

Flugvél CSA Airlines kemur inn til lendingar í Prag. Mynd: Nordic Photos/AFP

Samkeppnisyfirvöld hjá ESB hófu fyrr á þessu ári rannsókn á CSA Airlines, sem Iceland Express hefur nú samið við um flugþjónustu í stað Astraeus, sem er hætt starfsemi.

Tékknesk stjórnvöld komu CSA Airlines til bjargar í fyrra. Framkvæmdastjóri Evrópusambandsins sem fer með samkeppnismál tilkynnti 23. febrúar síðast liðinn að rannsókn væri hafinn á björgunaráætluninni. Þar yrði hvort tveggja skoðað hvort áætlunin væri líkleg til að skila árangri og eins hvort með henni væri brotið gegn reglum um ríkisstuðning við einstök fyrirtæki.

Hluti af björgunarpakkanum var lán upp á 94 milljónir evra, andvirði 15 milljarða króna, sem CSA fékk hjá tékkneska ríkisfyrirtækinu Osinek. Eftir að lánið var veitt voru veðunum sem CSA lagði fram fyrir láninu aflétt sem samkvæmt fréttatilkynningum frá samkeppniseftirliti ESB, varð til að auðvelda flugfélaginu að kaupa nýja flugvél. Í fréttatilkynningu Iceland Express um samninginn við CSA er einmitt tiltekið að önnur flugvélin sem verður notuð sé smíðuð á þessu ári en hin árið 2004. Ekki kemur þó fram í tilkynningum ESB um samrunann  um hvaða flugvélakaup er að ræða svo ekki er vitað hvort um sömu flugvél er að ræða.

brynjolfur@ruv.is

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku