Rafmagnslaust í Árneshreppi
Fyrst birt: 25.01.2012 16:05, Síðast uppfært: 25.01.2012 16:05

Mynd:Getty Images
Rafmagn fór af Árneshreppi og Drangsnesi uppúr klukkan hálf þrjú í dag. Að því er fram kemur á vefnum litlihjalli.is er verið að athuga með að tengja aðra leið í botni Steingrímsfjarðar norður, en rafmagn hafi áður farið í gegnum sæstreng yfir fjörðinn þegar rafmagn hafi farið af.
Það geti tekið dálítinn tíma að koma rafmagninu aftur á. Í Árneshreppi sé svarta bylur og sjáist ekki á milli húsa.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






