Rafmagnið fór af Snæfellsbæ

Safnmynd.

Íbúar Snæfellsbæjar máttu sætta sig við rafmagnsleysi síðdegis. Rafmagn fór af bænum þegar klukkuna vantaði fimmtán mínútur í fimm og komst ekki á aftur fyrr en tuttugu mínútur í sjö.

Ástæðu rafmagnsleysisins má rekja til yfirspennu að því er fram kemur í tilkynningu frá Rarik.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vesturland

Tilkynna um bilaða upptöku