Ráðherrann verði að taka skellinn
Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir tillögur og ákvarðanir um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu vera alfarið á ábyrgð ráðherra sem verði að taka skellinn.
Sighvatur Björgvinsson var heilbrigðisráðherra þegar réttargeðdeildin að Sogni var stofnsett fyrir um 20 árum. Sighvatur var gestur í Kastljósi í kvöld. Hann sagði að á sínum tíma hafi hans fyrsti valkostur verið Kleppspítali, Sogn hafi verið neyðarbrauð. Nú hafa hins vegar þeir sem mest börðust á móti Sogni skipt um skoðun og ljóst að Sogn virkar eins og það er rekið. Hann segir ábyrgð af slíkum sparnaðaraðgerðum alfarið liggja hjá ráðherra, það sé hann sem ákveði hvar eigi að skera niður.
Sighvatur segir að sá sem eigi að taka við skellinum sé ráðherrann. Hann hafi orðið fyrir skell og tekið honum, hann hafi líklegast tapað þriðjungi atkvæða vestur á fjörðum í hans tíð sem heilbrigðisráðherra. Menn verði bara að sætta sig við það. Það sem honum finnist ekki gott sé þegar alvarlegar tillögur sem þessar séu kynntar sem tillögur forstjóra Landspítalans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







