Umhverfisráðherra kynnti í gær í ríkisstjórn þá ákvörðun sína að hefja undirbúning að friðlýsingu alls Gjástykkis. Vísar ráðherra til álita bæði Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar um að svæðið hafi verndargildi á heimsmælikvarða og sé einstakt þegar komi að náttúruupplifun og tækifærum til fræðslu um landrek og eldgos. Stefnt hefur verið að rannsóknaborunum á afmörkuðu svæði í Gjástykki. Svandís segir að Skipulagsstofnun hafi lagt fram umhverfismat á einum teig á svæðinu. Stofnunin hafi hinsvegar ekki tekið afstöðu til hugsanlegrar orkunýtingar á svæðinu með tilheyrandi mannvirkjum. Framkvæmdaleyfi sé í höndum sveitarfélaganna, það verði ekki dregið til baka með þessari ákvörðun.
Afstaða umhverfisráðherra gagnvart mögulegum rannsóknaborunum í Gjástykki er skýr. Ekki eigi að raska svæðinu. Hún væntir þess að ná góðu samkomulagi við heimamenn.
frettir@ruv.is