Pólverjar unnu Þjóðverja

Pólverjar lögðu þjóðverja 33-32 í lokaumferð milliriðils eitt á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Pólverjar komust þar með í fimm stig og gerðu út um vonir Þjóðverja, sem einnig eru með fimm stig, um að komast áfram í undanúrslit þar sem sigur þeirra í innbyrðarviðureign liðanna fleytir þeim uppfyrir Þjóðverja. Pólverjar verða þó að treysta á að Danir tapi fyrir Svíum á eftir til þess að komast áfram.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku