Pierce orðinn stigahærri en Bird

Paul Pierce náði áfanga í gærkvöld.
Paul Pierce skoraði 15 stig fyrir Boston Celtics, þegar liðið sigraði Charlotte Bobcats í NBA körfuboltanum í nótt, 94-84. Þar með hefur Pierce skorað samtals 21.797 stig fyrir Boston á ferlinum og er næststigahæsti maður félagsins frá upphafi. Hann hefur nú skotist fram úr sjálfum Larry Bird.
Bird skoraði 21.791 stig og er nú orðinn þriðji stigahæsti leikmaður Boston. John Havilcek er hins vegar sá sem flest stig hefur skorað fyrir félagið eða 26.395 stig.
Paul Pierce er 34 ára og hefur leikið með Boston allan sinn NBA feril eða frá árinu 1998.
Önnur úrslit gærkvöldsins í NBA urðu þessi:
Oklahoma City - Golden State 116-119
Milwaukee - Phoenix 105-107
Miami - Cleveland 107-91
Minnesota - Sacramento 86-84
Indiana - Utah 104-99
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






