Paul McCartney fær stjörnu

Paul McCartney ásamt Neil Young við athöfnina í Hollywood í gær. Mynd:Getty Images

Paul McCartney fékk loks sína eigin stjörnu á frægðargangstéttinni þekktu í Hollywood í gær, sá síðasti af Bítlunum til að vera heiðraður á þann hátt.

Stjarna McCartneys er fyrir framan Capitol plötuútgáfufyrirtækið, við hliðina á stjörnum hinna Bítlanna, John Lennons, George Harrisons og Ringo Starrs.

„Þegar við vorum krakkar, að hlusta á Buddy Holly og hinar stórstjörnur rokksins, dreymdi mig aldrei um að ég myndi einn daginn fá stjörnu merkta mér á frægðargangstéttinni. Mér þótti það algjörlega fráleitt þá, en hér erum við í dag", sagði Bítillinn við þetta tækifæri. „Þetta hefði aldrei gerst án tiltekinna, þriggja drengja, svo ég vil bera þeim þakkir".

Bítlarnir fengu stjörnu á gangstéttinni, sem hljómsveit, árið 1998, þegar meira en aldarfjórðungur var liðinn frá því að hljómsveitin hætti. John Lennon og George Harrison fengu sínar eigin stjörnur mörgum árum eftir andlát þeirra og Ringo Starr fékk stjörnu merkta sér árið 2010.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku