Óvissustigi aflétt á Vestfjörðum
Fyrst birt: 29.01.2012 10:54, Síðast uppfært: 29.01.2012 10:55

Reitur níu á Ísafirði. Safnmynd.
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið aflétt.
Snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð á föstudag og vegna hættu á snjóflóðum á Ísafirði og í Hnífsdal var ákveðið að rýma Hraun í Hnífsdal og Höfða við Kirkjubólshlíð. Fólk sem þar býr fór til ættingja. Eins var svæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði, það er reitur níu, rýmt en það er iðnaðarsvæði og á því engin íbúðarhús. Í gærmorgun var staðan hins vegar metin svo að snjóflóðahætta væri liðin hjá og fólki leyft að snúa aftur heim. Þá var lýst yfir óvissuástandi en því hefur nú verið aflétt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Rýmingu aflétt vestra




