Óttast stórtjón annað árið í röð

Bændur á Austurlandi sjá sumir fram á stórtjón vegna kals í túnum annað árið í röð. Kalskemmd tún sem voru ræktuð upp með ærnum tilkostnaði í fyrravor eru nú í mikilli hættu.
Veðráttan á Austurlandi hefur ekki verið bændum hagstæð í vetur og virðist sem svell ætli að liggja yfir mánuðum saman. Svell eru í engu sérstöku uppáhaldi hjá bændum því haldist þau lengi drepst grasrót í túnum og kal myndast. „Það er náttúrulega búið að vera svell á mörgum túnum hjá bændum síðan í endaðan nóvember og ef það liggur svell ofan á grasi verður eitrun sem verður til þess að það er kal. Þannig að það er útlit fyrir mikið kal hér á Austurlandi,“ segir Guðný Harðardóttir. héraðsráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austurlands.
Ástandið eftir síðasta vetur var einnig slæmt. Margir bændur urðu fyrir tjóni og þurftu að kaupa hey annarsstaðar frá. Þá lögðu þeir í mikinn kostnað við að rækta upp skemmd tún. Sú ræktun er nú öll í voða. „Tölurnar síðan í fyrravetur eru ekki fallegar en því miður er þetta ekki bótaskylt nema að vissu hlutfalli og sumir hafa ekki náð því hlutfalli þó að þeir hafi lent í miklu tjóni,“ segir Guðný. „Við vitum að sumir bændur eru í veseni með sinn heyforða og eru ekki með nægan heyforða hreinlega út af kali. Þeir fóru svo í að rækta upp og svo er það í bráðri hættu núna. Þannig að ég trúi því að sumir bændur séu ekkert bjartsýnir eftir þennan vetur.“
Kaltjón kemur ekki endanlega í ljós fyrr en með gróanda í túnum í vor. Til að bætur fáist úr Bjargráðasjóði þarf kal að ná yfir minnst fjórðung allra nýttra túna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






