Ótrúleg tilþrif á X-leikunum
Fyrst birt: 01.02.2012 18:53, Síðast uppfært: 01.02.2012 19:11

Snjósleðakappi leikur listir sínar á snjósleða. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Heath Frisby afrekaði nokkuð sem enginn annar hefur nokkurntímann afrekað í keppni á snjósleða svo vitað sé til þegar hann settist á snjósleðann sinn í tilþrifakeppni x-leikanna og framkvæmdi framheljarstökk.
Að sögn Frisby bjóst hann við því að helstu keppinautar hans myndu framkvæma tvöfalt heljarstökk og hann yrði því að gera eitthvað einstakt ætlaði hann sér að vinna. Þó það væri vissulega mikil áhætta að fara í framheljarstökk þá taldi hann það þess virði og lét slag standa og hreppti gullið.
Framheljarstökk Frisbys má sjá hér.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku






