Ósátt við málsmeðferðina á bréfunum

Ung kona sem er vensluð Jóni Baldvini Hannibalssyni, segir í tímarítinu Nýju Lífi að hann hafi áreitt sig kynferðislega þegar hún var unglingur. Hún kærði brotin til lögreglu árið 2005 en málið var látið niður falla. Konan er ósátt við þá meðferð sem málið fékk hér á landi.
Tímaritið Nýtt líf birtir í dag viðtal við Guðrúnu Harðardóttur, systurdóttur eiginkonu Jóns Baldvins. Í því segir hún Jón Baldvin hafa áreitt sig kynferðislega þegar hún var fjórtán til sautján ára.
Guðrún kærði Jón Baldvin fyrir brotin í september 2005. Máli sínu til stuðnings lagði hún fram átta bréf sem Jón Baldvin skrifaði henni árin 1998 og 2001. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að hin meintu brot frá árinu 1998 hafi verið fyrnd.
Bréfin frá 2001 voru hins vegar rannsökuð. Þau skrifaði Jón Baldvin þegar Guðrún var skiptinemi í Venesúela. Jón Baldvin var þá sendiherra í Washington.
Í þeim lýsti Jón Baldvin meðal annars kynferðislegum athöfnum.
Ríkissaksóknari kannaði hvort slíkar lýsingar væru refsiverðar í Washington og Venesúela. Fyrirspurn var send til dómsmálaráðuneytisins þar sem óskað var eftir upplýsingum um þetta. Dómsmálaráðuneytið sendi fyrirspurnina áfram til utanríkisráðuneytisins sem svaraði ári seinna.
Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að hið ætlaða brot hafi verið framið á erlendri grund þar sem bæði Jón Baldvin og Guðrún voru stödd erlendis þegar bréfin voru skrifuð og opnuð. Málið var því látið niður falla.
Guðrún segir í viðtalinu við Nýtt líf að sér hafi verið brugðið við þessa niðurstöðu, niðurfellingin hafi verið „algjört sjokk“. Henni hafi sárnað að hafa fengið það í bakið að hafa verið skiptinemi þegar bréfin bárust.
Í Fréttablaðinu í dag biðst Jón Baldvin afsökunar á að hafa ritað bréfin til Guðrúnar.
Hann segist margoft hafa viðurkennt sök sína og beðist fyrirgefningar innan fjölskyldunnar. Jón Baldvin vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Sendi unglingsstúlku „erótísk“ bréf




