Öruggur sigur á sveit Kenýa

Flokkar: Skák, Íþróttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Íslenska liðið í opnum flokki vann öruggan 3,5-0,5 sigur á sveit Kenýa í níundu umferð Ólympíuskákmótsins í dag. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Þröstur Þórhallsson unnu andstæðinga sína en Dagur Arngrímsson gerði jafntefli.

Í kvennaflokki tapaði íslenska liðið 1,5-2,5 fyrir sveit Ástrala. Lenka Ptácníková vann sína skák og Elsa María Kristínardóttir gerði jafntefli en Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir töpuðu.

Stærstu tíðindi dagsins, og jafnvel mótsins hingað til, er sigur Bandaríkjamanna á Rússum 2,5-1,5 í opnum flokki. Sveitir Rússland, Bandaríkjanna, Kína og Armeníu eru efstar og jafnar með 15 stig þegar tvær umferðir eru eftir og má því búast við spennandi baráttu á lokasprettinum.

156 lið taka þátt í opnum flokki er íslenska liðið talið það 51. sterkasta miðað við meðalstig.  Í kvennaflokki eru þátttökuþjóðirnar 125 og er íslenska sveitin talin vera sú 62. sterkasta.

Nánar má lesa um mótið á vefsíðunni skák.blog.is.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku