Öruggir sigrar hjá toppliðunum

Fram og Valur eru efst og jöfn í deildinni með 20 stig eftir örugga sigra beggja liða í dag - Mynd: Eva Björk

Fjórir leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í dag.

Valur lagði Gróttu 27-22 á heimavelli sínum á Hlíðarenda en Valskonur höfðu yfir í hálfleik 17-11. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir skoraði átta mörk fyrir Val en þær Laufey Ásta Guðmundsdóttir, Sunna María Einarsdóttir og Elín Helga Jónsdóttir voru allar mðe fjögur mörk fyrir Gróttu.

Fram vann fjögurra marka sigur á Haukum 28-24 á Ásvöllum eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-9. Marija Gedroit skoraði níu mörk fyrir Hauka en Stella Sigurðardóttir var makrahæst í liði Fram með sjö mörk.

KA/Þór gerði góða ferð suður og sigraði FH með fjórum mörkum 25-21 en gestirnir að norðan höfðu forystu í hálfleik 12-8. Indíana Nanna Jóhannsdóttir skoraði sex mörk fyrir heimakonur í FH en Ásdís Sigurðardóttir skoraði tæplega helming marka KA/Þórs eða 12 alls.

Þá vann HK lið Stjörnunnar með tveimur mörkum 32-30 á heimavelli sínum í Digranesi en Stjörnukonur voru fimm mörkum yfir í hálfleik 20-15. Elísa Ósk Viðarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir HK en Sólveig Lára Kjærnested og Hanna Guðrún Stefánsdóttir voru með átta mörk hvor fyrir Stjörnuna.

Fram og Valur eru nú efst í deildinni með 20 stig og HK í þriðja sæti með 14 stig,  ÍBV er í fjórða sæti með 12 stig, Stjarnan með 10 stig í fimmta sæti, þá Haukar og KA/Þór með 6 stig, Grótta í áttunda sæti með 5 stig og FH í níunda og neðsta sæti með 3 stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku