Orka úr Eldvörpum til Helguvíkur

Stefnt er að því að orka úr Eldvörpum og Krísuvík verði seld til álversins í Helguvík. Gerðardómur í Svíþjóð hefur úrskurðað að HS Orku beri að afhenda Norðuráli orku til álversins í Helguvík.

Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir að fyrirtækið þurfi að sjá Norðuráli fyrir 150 megavöttum í fyrstu tvo áfanga álversins. 70-80 megawött geti fengist með stækkun Reykjanesvirkjunar, en virkjanaleyfi liggur fyrir. Afgangurinn á að koma frá Eldvörpum og Krísuvík, þar sem HS Orka undirbýr rannsóknir. 

Í úrskurði gerðardóms segir að fyrirvarar sem voru í orkusölusamningunum séu gildir. Þeir kveða meðal annars á um að virkjanir þurfi að vera arðbærar, rannsóknarleyfi þurfi að fást og sveitarstjórnir verði að samþykkja skipulagsbreytingar.

Júlíus segir að Norðurál og HS Orka hafi deilt um verð á raforkunni og það magn sem selja átti. HS Orka losnar undan samningunum vegna þess að orkuverð hefur hækkað, sem og kostnaður við byggingu virkjana og rekstur þeirra.

Sala á orku til álversins ætti ekki að hafa áhrif á orkusölu til kísilverksmiðju í Helguvík.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku