Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

Opnar hagleikssmiðju á Djúpavogi

Ágústa Arnardóttir
Ágústa Arnardóttir
Fatahönnuður á Djúpavogi hefur varla undan við að framleiða föt og töskur úr íslensku leðri og roði. Í plássinu opnar í sumar fyrsta hagleikssmiðjan hér á landi en þar verður íslensk leðurvinnsla í hávegum höfð.

Ágústa Arnardóttir hannar föt úr skinni og roði ýmissa skepna. Þar má nefna hreindýr, lömb, þorsk, lax og karfa. Hún stofnaði fatahönnunarfyrirtæki sitt Arfleifð á Djúpavogi og segir það frekar kost en ókost að vera fjarri höfuðborgarsvæðinu. Hagleikssmiðjan hennar Gústu eins og hún er kölluð opnar um miðjan júní. Þar verður í senn verksmiðja, verslun og safn þar sem handverk og aðferðir verða varðveitt.

Hér má horfa á viðtal við Ágústu.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta