Ölvaðir menn í hörðum árekstri
Fyrst birt: 28.01.2012 07:26, Síðast uppfært: 28.01.2012 07:28

Tveir ökumenn lentu í hörðum árekstri í Lækjargötu í miðborg Reykjavíkur klukkan tuttugu mínútur í fimm í morgun.
Ökumaður bílsins sem ekið var á var handtekinn skömmu síðar og reyndist hann vera mjög ölvaður. Hann gistir nú fangageymslur. Sá sem olli slysinu komst hins vegar undan á mikið skemmdum rauðum Peugeot og er líka talinn ölvaður.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






