Öllu fénu fargað vegna riðu

Menn voru hættir að hugsa um að riða gæti komið upp á þessu svæði, segir bóndinn í Merki á Jökuldal en riða hefur verið greind í sýni sem tekið var úr kind frá bænum. Farga þarf öllum fjárstofninum sem telur 530 kindur.
Bændurnir í Merki hafa áður lent í riðuniðurskurði. Það var árið 1990 þegar allt fé á svæðinu á milli Lagarfljóts og Jökulsár á Dal var skorið. Ekkert riðutilfelli kom upp hér á landi á síðasta ári og vonuðust menn til að það væri merki um að baráttan við þennan erfiða sjúkdóm væri farin að skila árangri.
Stefán Ólason bóndi í Merkisegir heimilisfólk afar slegið, en síðast þurfti að skera niður bústofninn vegna riðu árið 1990. „Það var samt svolítið öðruvísi í fyrra skiptið að því leyti að þá var þetta yfir allt svæðið. Það er allt öðruvísi þegar maður lendir í þessu svona. Auðvitað er voðalegt að lenda í þessu í annað skiptið og líka þegar maður lendir í þessu einn svona inn á milli. Þetta skapar tóm. Allir aðrir eru í sínu en hjá hinum er allt tómt og búið. Mönnum líður bara eins og manni sé sagt upp þegar menn fá svona fréttir. Það er alltaf vont þegar hlekkir fara úr byggðinni. Keðjan slitnar. En menn verða bara að reyna að þrauka,“ segir Stefán.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






