Olivier Giroud í raðir Arsenal
Fyrst birt: 26.06.2012 11:14, Síðast uppfært: 26.06.2012 11:14

Franski landsliðsmaðurinn Olivier Giroud er genginn til liðs við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Giroud er 25 ára framherji sem skoraði 21 mark fyrir Montpellier sem vann frönsku deidina í fyrsta skipti á síðasta tímabili. Frakkinn Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur verið duglegur að fá landa sína til Lundúnarliðsins í gegnum tíðina en Giroud verður sjötti Frakkinn í núverandi leikmannahópi liðsins. Fyrir hjá Arsenal eru Frakkarnir Abou Diaby, Laurent Koscielny, Bacary Sagna, Sebastien Squillaci, og Francis Coquelin. Giroud spilaði með liði Frakka sem datt út í 8-liða úrslitum á Evrópumótinu sem nú stendur yfir í Póllandi og Úkraínu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







