Óli Stef hættur í landsliðinu

Ólafur Stefánsson sem flestir telja besta handboltamann þjóðarinnar frá upphafi hefur nú tekið endanlega ákvörðun um að leggja landsliðsskóna á hilluna. Ólafur staðfesti þetta við RÚV.
Nákvæmlega 20 ár voru í gær liðin frá því Ólafur lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland en það var vináttulandsleikur gegn Egyptum. Hann lék 329 landsleiki á ferlinum og skoraði í þeim 1562 mörk og er þriðji leikjahæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi á eftir Guðmundi Hrafnkelssyni og Geir Sveinssyni.
Á landsliðsferli sínum vann Ólafur til bronsverðlauna á Evrópumótinu 2010 og silfurverðlauna á Ólympíuleikunum árið 2008.
Síðasti landsleikur Ólafs var gegn Ungverjum í 8 liða úrslitum á Ólympíuleikunum í sumar þar sem Ísland féll úr leik eftir naumt og svekkjandi tap. Síðan hefur legið í loftinu að Ólafur tilkynnti um endalok sín með landsliðinu en það hefur hann ekki viljað staðfesta fyrr en nú.
Ólafur er án félags í augnablikinu eftir gjaldþrot AG Kaupmannahafnar og er óljóst hvað tekur við.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














