Ólga á Maldíveyjum

Mohamed Nasheed, fyrrverandi forseti Maldíveyja, hylltur af stuðningsmönnum í höfuðborginni Malé í dag. Mynd:AFP

Mikil ólga hefur verið á Maldíveyjum síðan Mohamed Nasheed, forseti, sagði af sér í gær. Ráðist var á lögreglustöðvar og opinberar byggingar á tveimur eyjanna í dag og höfuðborginni Malé komu um þrjú þúsund manns saman og kröfðust þess að Nasheed tæki aftur við stjórnartaumunum.

Beitti lögregla táragasi og kylfum til að dreifa mannfjöldanum.  Nasheed sagði í viðtölum við fréttastofur í dag að hann hefði verið neyddur til að segja af sér í gær til að koma í veg fyrir blóðsúthellingar. Foringjar í her- og lögreglu hefðu hótað ofbeldi léti hann ekki af embætti. Mohamed Waheed, sem var varaforseti, hefur tekið við embætti forseta og í dag setti hann Nasheed og helstu fylgismenn hans í ferðabann.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku