Ólafur og Þóra tapa bæði fylgi



  • Prenta
  • Senda frétt

Ólafur Ragnar Grímsson hefur átta prósentustiga forskot á Þóru Arnórsdóttur samkvæmt nýrri könnun Gallup á fylgi við forsetaframbjóðendur. Ari Trausti Guðmundsson og Herdís Þorgeirsdóttir bæta við sig fylgi frá síðustu könnun.

Kosið verður milli sex forsetaframbjóðenda eftir níu daga. Samkvæmt nýrri könnun frá Capacent Gallup mælist Ólafur Ragnar Grímsson nú með mest fylgi frambjóðendanna, 44,8 prósent þeirra sem tóku afstöðu, ætla að kjósa hann en það er um einu prósentustigi minna fylgi en í síðustu könnun.

Þóra Arnórsdóttir mælist með 37 prósenta fylgi, um tveimur prósentustigum minna en síðast. Bilið milli þeirra hefur því aukist um eitt prósentustig á tveimur vikum. Þá var munurinn sjö prósentustig en er nú átta.

Ari Trausti Guðmundsson er með 10,5 prósenta fylgi og Herdís Þorgeirsdóttir með stuðning 5,3 prósenta kjósenda. Bæði Ari Trausti og Herdís bæta lítillega við sig fylgi frá síðustu Gallup könnun en aðrir frambjóðendur missa fylgi. Andrea J Ólafsdóttir er með 1,6 prósenta fylgi og Hannes Bjarnason með 0,8 prósent.

Sextíu prósent þeirra sem styðja ríkisstjórnina styðja Þóru sem forseta en 62 prósent stjórnarandstæðinga styðja við bakið á Ólafi Ragnari.
Könnunin var gerð dagana 14. til 20. júní. 1.350 lentu í úrtakinu, svarhlutfallið var 58,5 prósent. 82 prósent af þeim sem svöruðu tóku afstöðu til frambjóðendanna, fjögur prósent ætla annað hvort ekki að kjósa eða skila auðu, en 14 prósent tóku ekki afstöðu í könnuninni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku