Ólafur hættir með Breiðablik
Fyrst birt: 15.09.2011 16:42, Síðast uppfært: 15.09.2011 16:42
Ólafur Brynjólfsson er hættur sem þjálfari Breiðabliks í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Ólafur tók við liðinu á miðju tímabili af Jóhannesi Karli Sigursteinssyni og Vöndu Sigurgeirsdóttur en liðið náði ágætis árangri undir stjórn Ólafs eftir afleita byrjun á tímabilinu.
Þar með eru þrír þjálfarar úr úrvalsdeild kvenna frá því í sumar hættir með sín lið en hinir eru Jón Þór Brandsson sem stjórnaði Grindavík og Björgvin Karl Gunnarsson hjá KR.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






