Ólafur Björn bætti sig um sex högg

Ólafur Björn Loftsson - Mynd: Myndasíða Golfsambands Íslands

Ólafur Björn Loftsson er í 69. sæti af 90 keppendum á samtals 16 höggum yfir pari á sterku áhugamannamóti í golfi sem fram fer í Ocean Forest vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Ólafur Björn lék annan hringinn á mótinu á 77 höggum eða fimm höggum undir pari og bætti sig um sex högg frá fyrsta hring.

Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer ár hvert en Ólafur Björn fékk boð í mótið meðal annars vegna góðrar fammistöðu á Wyndham-meistaramótinu í PGA-mótaröðinni síðasta sumar.

Lokahringurinn er leikinn í dag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Golf, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku