Ofsaakstur á Reykjanesbraut

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um helgina karlmann á fertugsaldri fyrir ofsaakstur undir áhrifum fíkniefna og fíkniefnavörslu.

Lögreglan varð hans fyrst vör þar sem hann mældist á rúmlega 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í Garðabæ. Manninum var veitt eftirför þar til hann stöðvaði bílinn í Hafnarfirði. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hann hafi alloft áður gerst sekur um umferðarlagabrot.

Talsvert var um hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og voru nokkrir tugir ökumanna stöðvaðir vegna þessa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku