Prenta frétt

Senda frétt

Ófrjósemisaðgerðalög afnumin

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp um að fella endanlega úr ríflega sjötíu ára gömul lög sem heimila ófrjósemisaðgerðir á fólki með þroskahömlun eða geðsjúkdóma. Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands, segir þetta vera síðustu leifarnar af mannkynbótalögum á Íslandi.

Rannveig segir að þegar byrjað hafi verið að loka stofnunum á sínum tíma hafi konur þurft að fara í ófrjósemisaðgerð áður en þær fengu að flytjast út af stofnununum.

María Hreiðarsdóttir, varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun, segist vita um nýleg dæmi um þvingaðar ófrjósemisaðgerðir. Hún veit um fólk í kringum fertugt og eldra sem hafi þurft að ganga gegnum ófrjósemisaðgerðir.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta